Kennsla og námsmat
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Nulla nunc tortor, accumsan ut luctus vel, varius non urna. Donec a dolor suscipit, efficitur magna non, tincidunt purus. Pellentesque leo nibh, euismod at ex eget, mattis congue nunc.
Skoða og læra meira um hljóðfærin.
Nám í skólahljómsveitum er tvíþætt:
- Virk þátttaka í A, B eða C sveitum eftir aldri og færni nemenda.
- Auk þátttöku í hljómsveitaræfingum á hver nemandi kost á hljóðfærakennslu í 40-60 mínútur á viku eftir aldri og kunnáttu.
Hljóðfærakennsla fer eftir atvikum fram á skólatíma eða eftirá. Skipulag kennslustunda á skólatíma er í samráði við skólastjóra, viðkomandi grunnskólakennara og með samþykki forráðamanna. Hljóðfæranám byggir að stórum hluta á heimaæfingum. Því er nauðsynlegt að nemendur hafi aðstöðu og njóti stuðnings heima fyrir.
Ástundun
Nemendur mæti á allar hljómsveitaræfingar, spilatíma og aðra skipulagða viðburði á vegum skólahljómsveitarinnar. Öll forföll skal tilkynna með fyrirvara.
Til að viðunandi árangur náist í hljóðfæranámi þarf nemandi að leika á hljóðfæri sitt á hverjum degi.
Námsmat
Námsmat fer fram a.m.k. einu sinni á ári samkvæmt starfsáætlun skólahljómsveita.
Felst það í:
- Ársprófi skólahljómsveita eða grunn-/miðprófi tónlistarskóla eftir því sem við á.
- Umsögn og/eða einkunn kennara og stjórnanda um ástundun nemanda.